Óbyggðirnar kalla

Lag: Magnús Eiríksson. Ljóð: Magnús Eiríksson & KK

Hoppa kátur út um dyrnar
við blasir heimurinn,
himinblár er bláminn,
himneskur jökullinn.

Óbyggðirnar kalla
og ég verð að gegna þeim.
:,:Ég veit ekki hvort eða hvernig
eða hvenær ég kemst heim:,:

Með bergmál óbyggðanna
svo bjart í höfði mér,
leiður á öllu og öllum,
hundleiður á sjálfum mér.

Óbyggðirnar kalla
og ég verð að gegna þeim.
:,:Ég veit ekki hvort eða hvernig
eða hvenær ég kemst heim:,:

Hoppa kátur út um gluggann
úr blokk á fyrstu hæð,
svo siglir sálarduggan
í allri sinni smæð.

Óbyggðirnar kalla
og ég verð að gegna þeim.
:,:Ég veit ekki hvort eða hvernig
eða hvenær ég kemst heim:,: