Meiri snjó

Lag: J.Styne/S.Cahn. Ljóð: Ólafur Gaukur. Úts.: Björn Leifsson

Er lægst er á lofti sólin,
þá loksins koma jólin.
Við fögnum í frið´og ró
meiri snjó, meiri snjó, meiri snjó

Það gleðst allur krakka kórinn
er kemur jóla snjórinn
og æskan fær aldrei nóg
meiri snjó, meiri snjó, meiri snjó.

Það er barnanna besta stund
þegar byrjar að snjóa á grund
úti´á flötinni fæðist hratt
feikna snjókarl með nef og með hatt.

Svo leggjast öll börn í bólin
því bráðum koma jólin,
þau fagna í friði´og ró
meiri snjó, meiri snjó, meiri snjó.

Það er barnanna…..