Komdu nú að kveðast á

1.
Komdu nú að kveðast á,
kappinn ef þú getur:
láttu ganga ljóðaskrá
ljóst í allan vetur.

2.
Rímnahættir hressa lund,
halir við þá kætast;
látum nú um litla stund
lag og bögu mætast.

3.
Tíminn hraði háður er
hörðum skaðakjörum;
lyndisglaður leik ég mér
lífs í svaðilförum.

4.
Mig vill fergja mæða’ og slys,
má því kergju bera,
ég er erginn innvortis,
eiri hvergi’ að vera.

5.
Allt vill ganga andhæli,
allt vill ranga veginn,
allt vill spranga úrhendis,
allt vill þangað megin.

6.
Nökkva lífs á nýjan vog
nú skal hrinda´úr sandi.
Enginn veit hvað áratog
eru mörg að landi  

7.
Illa gróa sumra sár,
svona þó er varið,
bágt er að róa einni ár,
ef á sjó er farið.

8.
Réna tekur róms um port
ræðan stirð að vanda.
Hef ég máli skýru skort,
skal því ríman standa.