Jón er kominn heim

Jón er kominn heim
Texti: Iðunn Steinsdóttir. Lag: Robinson. Úts.: Aðalheiður Þorsteinsdóttir

Ég er hýr og ég er rjóð, Jón er kominn heim.
Ég er glöð og ég er góð, Jón er kominn heim
Kvíði, mæð’ og angist er, aftur vikið burt frá mér
því Jón er kominn heim

Vorkvöld eitt þá fór hann Jón í fússi burt,
föl og hnípin eftir sat ég hér.
En brennheit var mín þrá, og býsn ég eltist þá
og brosið hvarf af andlitinu á mér.

Ég er hýr og ég er rjóð …

Loks í gær var drepið létt á dyr hjá mér.
Drottinn minn og úti stóð hann Jón.
Þó víða færir þú, þú varla fyndir nú
í veröldinni lukkulegri hjón

Ég er hýr og ég er rjóð …