Jól

Lag: Jórunn Viðar. Ljóð: Stefán frá Hvítadal

Þau lýsa fegurst er lækkar sól,
í bláma heiði mín bernskujól
Er hneig að jólum hjarta brann,
í dásemd nýrri hver dagur rann.

Það lækkaði stöðugt á lofti sól,
þau brostu í nálægð, mín bernskujól,
og sífellt styttist við sérhvern dag
og húsið fylltist af helgibrag.

Ó, blessuð jólin er barn ég var,
ó, mörg er gleðin að minnast þar.
Í gullnum ljóma hver gjöf mér skín.
En kærust voru mér kertin mín.

Ó, láttu, Kristur, þau laun sín fá
er ljós þín kveiktu er lýstu þá.
Lýstu þeim héðan er lokast brá,
heilaga Guðsmóðir, himnum frá.

.