Guð gaf mér eyra

Þjóðlag. Þjóðvísa. Úts. Marteinn H. Friðriksson

:,:Guð gaf mér eyra svo nú má ég heyra,
Guð gaf mér auga svo nú má ég sjá:,:
Guð gaf mér hönd svo ég gjört geti meira,
Guð gaf mér fætur sem nú stend ég á.
Guð gaf mér eyra svo nú má ég heyra
Guð gaf mér auga svo nú má ég sjá.

:,:Guð gaf mér höfuð sem hugsar og dreymir
hátt sem að lyftist að vísdómsins lind:,:
Guð gaf mér hjarta, já hjarta sem geymir
hreina og geislandi frelsarans mynd.
Guð gaf mér höfuð sem hugsar og dreymir,
Hátt sem að lyftist að vísdómsins lind.