Frá ljósanna hásal

Cantus Diversi 1751 / Jens Hermannsson

Frá ljósanna hásal ljúfar stjörnur stara
og stafa um næturhúmið geislakrans.
Fylkingar engla létt um loftið fara
og ljúfir söngvar hljóma
um lífsins helgidóma,
um eilíft heilagt alveldi kærleikans.

Ó, heilaga stjarna, rjúf þú voðans veldi
og varðaðu jarðarbarnsins myrka stig.
Ljósanna faðir, lát á helgu kveldi
hvert fávíst hjarta finna
til friðar barna þinna.
Gef föllnum heimi ráð til að nálgast þig