Hefur þú áhuga á að syngja í kvennakór? Kvennakór Akureyrar snýr aftur úr sumarfríi næsta sunnudag og við viljum gjarnan bæta við okkur fleiri söngkonum.
Raddprufur verða kl. 15:00 sunnudaginn 7. september og fyrsta æfing vetrarins verður í beinu framhaldi kl. 16:45. Nánari upplýsingar veitir formaður kórsins hún Una Þórey formadur@kvak.is s. 848-4736.
Við hlökkum til að taka á móti nýjum konum.