Vakir vornótt

Lag: Birgir Arason         Ljóð: Þórir Valgeirsson  

Þegar sól að morgn’af svefni vekur líf
og signir haf og land.
Þegar glaðar, litlar bárur byrja leik
við bláan fjörusand.
Teygja sig mót himni háum
hrikafjöll með tindum bláum
hnjúkum klæddum fannafeldi 
föðmuð rauðum sólareldi.
Vakir vornótt við Eyjafjörð.
Ekkert þín augu sjá indæll’á jörð.

Blátær lind með glöðum söngvum stall af stalli
steypist fram af brún.
Vakna blómin endurnærð í árdögginni
og anga gróin tún,
Í fjallahlíðum fuglar kvaka
foss og lækur undir taka.
Hefst þar óður Eyjafjarðar
ástarljóð til móður jarðar.
Vakir vornótt við Eyjafjörð.
Ekkert þín augu sjá indæll’á jörð.