Ég lifi í draumi

Lag: Eyjólfur Kristjánsson Ljóð: Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson

Ég lifi í draumi,
dreg hvergi mörkin dags og nætur,
sveiflast aðeins ósjálfrátt.
Í hægum gangi,
á fullt í fangi með að finna það
sem oftast reynist öfug átt.
Það er líkt og ég sé laus úr öllum viðjum,
lentur hringsólandi á vegi miðjum.
Ég lifi í draumi,.
dreg hvergi mörkin dags og nætur,
sveiflast aðeins ósjálfrátt.

Ég lifi í tómi,
tek engan þátt í trylltum dansi
fólksins allt í kringum mig.
Aleinn á randi,
veit að minn vandi er að vera þar
sem enginn getur áttað sig.
Það er líkt og ég sé lagstur út í bili,
leitandi að bát á réttum kili.
Ég lifi í tómi,
tek engan þátt í trylltum dansi
fólksins allt í kringum mig.

Ég lifi í veröld,
veit ekki hvaða vindar þjóta
en þeir fara fram hjá mér.
Eins konar fangi
á víðavangi eða varnarlaus
gegn því sem er á meðan er.
Það er líkt og ég sé lamaður af ótta,
líf mitt rennur burt á hröðum flótta.
Ég lifi í veröld,
veit ekki hvaða vindar þjóta
en þeir fara fram hjá mér.