Lag: Valgeir Guðjónsson. Ljóð: Jóhannes úr Kötlum. Úts. Daníel Þorsteinsson
Sunnan yfir sæinn breiða
sumarylinn vindar leiða.
Draumalandið himinheiða
hlær og opnar skautið sitt.
Vorið kemur, heimur hlýnar
hjartað mitt!
Gakk þú út í græna lundinn,
gáðu fram á bláu sundin.
Mundu, að þá er stutt hver stundin,
stopult jarðneskt yndi þitt
Vorið kemur, heimur hlýnar
hjartað mitt!
Allt hið liðna er ljúft að geyma,
láta sig í vöku dreyma.
Sólskinsdögum síst má gleyma,
segðu engum manni hitt!
Vorið kemur, heimur hlýnar
hjartað mitt!