Lag: Py Bäckman. Texti: Valgeir Skagfjörð. Radds.: Edda Björk Jónsdóttir
Mér eru allir vegir færir
ég faðma dægrin fast að mér.
Nú löng mig vefur nóttin
það lýsa stjörnur og ég leita skjóls hjá þér.
Ég hef eignast ást í hjarta.
Er eins og vermi morgunsól.
Nú brátt fer allt að breytast.
Í brjósti logar heitt og haldin verða jól.
Vetrarnótt
verður stillt allt og hljótt,
heimi í
er hátíð enn á ný.
Í kvöld er kraftaverkið
því kyrrðin veitir birtu’ og yl.
Ég stend við hlið þér sterkur já,
stígum skrefið það er gott að vera til.
Vetrarnótt
verður stillt allt og hljótt,
heimi í
er hátíð enn á ný.