Daníel Þorsteinsson píanóleikari er fæddur í Neskaupstað og hóf þar sitt tónlistarnám. Hann lauk burtfarar- og píanókennaraprófi frá Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar 1986 og stundaði framhaldsnám við Sweelinck tónlistarháskólann í Amsterdam, þaðan sem hann lauk prófi árið 1993.
Daníel hefur verið virkur í íslensku tónlistarlífi um árabil, komið fram sem einleikari m.a. með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands sem og í samleik með einsöngvurum og smærri tónlistarhópum; auk þess sem hann hefur haldið námskeið í píanóleik, bæði hér á landi og á Spáni. Hann er félagi í Caput og hefur haldið tónleika með hópnum víða í Evrópu auk Norður-Ameríku og Asíu.
Daníel hefur og samið og útsett tónlist s.s. fyrir leikhús, kóra og einsöngvara og leikið inn á fjölda hljómdiska tónlist af ýmsu tagi. Daníel var tilnefndur bæjarlistamaður á Akureyri árið 2000, býr nú í Eyjafjarðarsveit og gegnir m.a. starfi organista við Laugalandsprestakall í Eyjafirði.